Karellen
news

Kynning á starfskonu - Katrín Ósk

15. 10. 2021

Ég heiti Katrín Ósk Sveinsdóttir og er 26 ára. Ég á afmæli í janúar og er því Steingeit. Ég er gift henni

Birtu og saman eigum við Andra Þór 14 ára og Steiney Hönnu 1 árs, 3 ketti og 1 hund.
Ég er Akureyringur en hef búið um land allt þar að meðal; Akureyri, Keflavík, Hornafirði, Eyrarbakka,
Selfossi, Reykjavík og enduðum við hjónin a því að kaupa hús hér á Flúðum og held ég að það sé
besta ákvöðun sem við höfum tekið.
Ég hef unnið við allskonar störf eins og í Byko,Krónunni,hjá Íslandspósti,Hörpunni,Kringlukráinni og nú síðast á tjaldsvæðinu hér á Flúðum.

Ég er ekki buin að mennta mig og hef ég enn ekki fundið það sem ég vil læra.
Ég elska að vinna a leikskóla, mer finnst æðislegt að vinna með börnum og öllu sem að þeim snýr og
er ég spennt að mæta i vinnu á hverjum degi.


Áhuga málin mín eru bakstur og öllu sem kemur að honum, útivist og finnst mjög gaman að ferðast. Dýr eru einnig í uppáhaldi hjá mér,einnig á ég það til að gleyma mér í tölvuleikjum.


Það sem enginn veit um mig er að blöðrur hræða úr mér líftóruna, ég hef mikla fóbíu fyrir ormum og
sníglum og einnig er ég mikið hrædd við fugla og hrossaflugur.

© 2016 - 2024 Karellen