Karellen


Nauðsynlegur útbúnaður fyrir leikskólabarn

Til að barninu líði sem best í leikskólanum er mikilvægt að útbúa það eins vel og kostur er. Útifatnaður þarf að vera eftir veðri og árstíðum og gott er að vera með fjölnotapoka undir blaut/skítug föt í hólfi barnsins, reynum að komast hjá því að nota plastpoka.

Á mánudögum eru útifötin tekin upp úr pokanum og sett í hólf barnsins og á föstudögum eru þau tekin heim og þvegin. Fylgjast þarf með útifötunum DAGLEGA því stundum þarf að þrífa þau oftar, fer eftir veðri hverju sinni.

Útiföt sem þurfa alltaf að vera með

  • Pollagalli, pollavettlingar
  • Flíspeysa / flísbuxur / ullarpeysa. Lopapeysur eru mjög hlýjar undir regngalla
  • Stígvél og skó. Góða skó sem haldast vel á fæti. Vinsamlegast merkið vel skó barnanna.
  • Ullarsokkar (mælum með lopasokkum þegar börnin eru að fara í stígvél)

Yfir veturinn að vera einnig með

  • Útigalla
  • Lopavettlinga, 2 – 3 pör eða þykka vettlinga. (fingravettlingar henta betur yfir sumartímann því mælum við með því að geyma þá heima fram að vori)
  • 2 hlýjar húfur
  • Kuldaskó
  • Buff, þá er það notað sem kragi / trefill

Aukaföt í kassa

  • 2 sokkapör
  • 2 sokkabuxur eða gammósíur
  • 2 buxur
  • 2 nærfatnaður
  • 2 peysur

Þessi fatnaður er geymdur í fatakössum, annaðhvort fyrir ofan hólf barnanna eða inni á deildum. Við viljum minna á að mikilvægt er að kíkja reglulega í fatakassana til að athuga hvað vantar.

Þurrkskápur

Blaut og óhrein föt fara ekki í þurrkskápana! Einungis húfur og vettlingar. Óhrein eða blaut föt setjum við í taupoka barnanna. Eftir útiveru á föstudögum eru blaut föt ekki sett inn í þurrkskápana. Skáparnir eru tæmdir á föstudögum og þrifnir.

Merkingar á fatnaði

Þar sem margir eru með eins flísfatnað, stígvél, ullarsokka, vettlinga, pollavettlinga, pollagalla, vetrargalla og buff er alveg nauðsynlegt að merkja allan þennan fatnað mjög vel svo hann ruglist ekki á milli barna eða fatnaður fari heim með öðrum. Kennarar reyna eftir bestu getu að gæta að fatnaði og skótaui hvers og eins en þegar flíkurnar eru margar og margt um að vera getur alltaf orðið ruglingur sem vonandi er auðvelt að leiðrétta og brosa yfir. Það sem er merkt ruglast síður og kemst frekar til skila.

Að börn noti fatnað af eldra systkini og / eða af einhverjum öðrum er sannarlega gott. Það er hins vegar verra þegar fatnaðurinn er merktur fyrri eiganda (sérlega öðrum en systkini). Það gerir okkur mjög erfitt að finna út úr hver á viðkomandi flík. Þess vegna viljum við beina þeim tilmælum til foreldra / aðstandenda að fatnaðurinn sé merktur núverandi eiganda.



© 2016 - 2024 Karellen